top of page
Herdis-Anna-Jonasdottir_edited.jpg

Herdís Anna Jónasdóttir sópransöngkona hefur á ferli sínum öðlast reynslu í flutningi á margs konar tónlist, jafnt ljóðasöng sem óperu, kirkjutónlist, söngleikjum og samtímatónlist – jafnt á Íslandi sem erlendis. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum óperu- og söngleikjauppfærslum, meðal annars þegar hún var fastráðin við Ríkisleikhúsið í Saarbrücken á árunum 2013–2018. Á Íslandi hefur hún tvívegis sungið með Íslensku óperunni, Musettu í La bohéme og Víólettu Valery í La traviata. Þá hefur Herdís margsinnis komið fram á tónleikum, til dæmis með Kammersveit Reykjavíkur, Barokkbandinu Brák, Caput hópnum, á ýmsum tónlistarhátíðum, með ríkishljómsveit Saarlands, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Færeyja og Sinfóníuhljómsveitinni í Canberra, Ástralíu, sem og með minni kammerhópum og hljóðfæraleikurum. Jafnframt hefur Herdís komið fram í útvarpi og sjónvarpi. 
Herdís Anna hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir söng sinn, meðal annars Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir söng ársins 2022, Grímuna árið 2019 og hún var valin Söngkona ársins í Saarbrücken vorið 2016. Fyrsta sólóplata Herdísar Nýir vængir kom út 2021, hvar hún, ásamt Bjarna Frímanni, flytur íslensk sönglög, gömul og ný. 

bottom of page